Mirka DEOS383CV MID3830201 [93/188] Aðgæsla

Mirka DEOS383CV MID3830201 [93/188] Aðgæsla
92 MirkDEOS 353 & 383 81 x 133 mm (3 x 5") & 70 x 198 mm (3 x 8") MirkDEOS 353 & 383 81 x 133 mm (3 x 5") & 70 x 198 mm (3 x 8") 93
is
VIÐVÖRUN
Notaðu ávallt þær persónuhlífar sem krafist er í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda og lands- og héraðsstaðla
þegar verkfæri þetta er í notkun.
Rafmagnsöryggi verkfærisins er best tryggt með því að nota eingöngu upprunalega Mirka bakpúða.
Ekki nota rafverkfæri þegar þú ert þreytt/ur eða undir áhrifum vímuefna, áfengis eða lya.
Kynntu þér öryggisgagnablað efniviðar (MSDS) um yfirborð vinnusvæðis.
Notaðu verkfærið með ryksugu. Ryksuga við hæfi dregur úr magni hættulegs ryks.
Teygðu þig ekki of langt. Notandinn verður alltaf að standa í öruggri stöðu öruggum fótum á föstu gólfi og hafa gott
tak á verkfærinu.
Ekki ganga með fráflakandi/losaraleg föt eða skartgripi. Haltu hári, fatnaði og hönskum í góðri arlægð frá hlutum á
hreyfingu. Fráflakandi fatnaður, skartgripir eða sítt hár getur flækst í hlutum á hreyfingu.
Finni notandi til einhverra óþæginda í hönd/úlnlið, ber að hætta vinnslu og leita til læknis. Einhæf vinna, endurteknar
hreyfingar og váhrif titrings geta orsakað meiðsl á hendi, úlnlið eða handlegg.
Ekki nota rafverkfæri þar sem sprengjuhætta er, svo sem nálægt eldfimum vökvum, gasi eða ryki. Rafverkfæri gefa frá
sér neista sem kveikt geta í ryki eða gufum.
AÐGÆSLA
Haltu vinnusvæðinu hreinu og vel upp lýstu.
Gættu þess ætíð að viðfangsefnið sem á að pússa sé vandlega fest.
Taktu rafverkfærið ávallt úr sambandi áður en skipt er um svarfskífu. Gættu þess að svarfskífan sé vandlega miðjusett
og örugglega fest við bakpúðann.
Haltu börnum og áhorfendum frá á meðan rafverkfæri er í notkun. Ef eitthvað truflar einbeitinguna, gætir þú misst
stjórn á verkfærinu.
Vertu ætíð vakandi fyrir öryggi á vinnustað. Aldrei má bera verkfærið, geyma það eða hafa það eftirlitslaust á meðan
það er tengt við rafmagn.
Komdu ekki nálægt púðanum með höndum við notkun.
Viðbótaröryggisviðvaranir
Lestu allar leiðbeiningar áður en verkfærið er tekið í notkun. Allir notendur verða að hafa hlotið ýtarlega þjálfun í réttri
og öruggri notkun verkfærisins.
Allt viðhald skal vera í höndum sérþjálfaðs starfsfólks. Láttu viðurkennda þjónustumiðstöð Mirka annast alla
viðhaldsþjónustu.
Notaðu tækið alltaf með mismuna-lekastraumsrofa (RCD) með að hámarki 30 mA mállekastraumi.
Rafmagnsinnstungan og tengið eru ekki IEC-samhæfð tengi. Notaðu eingöngu upprunalega Mirka rafmagnsleiðslu.
Þú færð Mirka rafmagnsleiðslu keypta hjá umboðsmanni Mirka.
Kannaðu verkfærið, bakpúðann, rafleiðsluna og alla fylgihluti vandlega og reglubundið í leit að sliti.
Hreinsaðu eða skiptu daglega um poka á ryksugunni. Ryk getur verið afar eldfimt. Það tryggir einnig bestu mögulegu
afköst að hreinsa pokann eða skipta um hann.
Gakktu ávallt úr skugga um að tæknilýsing rafverkfæris standist á við aflúttakið (V, Hz).
Ef svo virðist sem bilun verði í tækinu, hættu þá notkun þess umsvifalaust og skilaðu því í þjónustu og viðgerð.

Содержание

Похожие устройства

Скачать