Mirka DEOS383CV MID3830201 [95/188] Bluetooth

94 MirkDEOS 353 & 383 81 x 133 mm (3 x 5") & 70 x 198 mm (3 x 8") MirkDEOS 353 & 383 81 x 133 mm (3 x 5") & 70 x 198 mm (3 x 8") 95
is
Hvernig á að heast handa
Þegar verkfærið er tekið úr umbúðum sínum skal þess gætt að það sé óskemmt, fullbúið og hafi ekki skemmst í
flutningum. Notaðu aldrei skaddað verkfæri.
Kannaðu fyrir notkun hvort bakpúðinn sé rétt settur á og fast hertur. Tengdu rafmagnsleiðsluna við slípivélina. Settu
rafmagnsleiðsluna í samband við jarðtengda rafmagnsinnstungu (220–240 VAC, 50/60 Hz).
Mælt er með því að nota verkfærið með Mirka-ryksugu og Mirka netslípivörum til þess að nýta sem best afl tækisins.
Grundvöllur Mirka slípilausna án ryks er sá að nota bæði Mirka-slípivélar, netslípilausnir og Mirka-ryksugu.
Rafmagnsleiðslan úr slípivélinni er tengd við raftengið framan á ryksugunni. Sé rafmagnsleiðsla slípivélarinnar tengd
við raftengið á ryksugunni er hægt að nýta sér sjálfvirka ræsingu hennar.
Leiðbeiningar um notkun
Ætlast er til þess að verkfærið sé notað sem handverkfæri. Hægt er að nota verkfærið í hvaða stöðu sem er.
Athugasemd! Slípivélin getur myndað snúningsátak þegar hún er sett í gang.
Gættu þess að slökkt sé á slípivélinni. Veldu viðeigandi svarfskífu og festu hana tryggilega við bakpúðann. Gakktu úr
skugga um að svarfskífan sé miðjustillt á bakpúðanum. Við mælum með því að verkfærið sé notað með öðrum vörum
og fylgihlutum frá Mirka til að ná sem bestum árangri.
Kveiktu á slípivélinni með því að þrýsta á Á/Af hnappinn, sjá Mynd 1. Ljóstvistur (LED) slípivélarinnar (hægri) lýsir nú
grænu ljósi.
Nú er hægt að setja slípivélina í gang með því að þrýsta á handfangið.
Hægt er að stilla hraðann á bilinu 5.000 og hámarks s.á.m. með því að breyta stöðu handfangsins.
Hægt er að stilla hámarks s.á.m. með því að þrýsta á rpm+ eða rpm–, Mynd 1. Hægt er að stilla snúningshraðann í
þrepum, 5.000, 6.000, 7.000, 7.500, 8.000, 9.000 og 10.000 s.á.m.
Verkfærið er búið tveimur leiðum til hraðastillingar. Í sjálfgildisstillingu er hægt að stilla hraðan línulega með því að
færa handfangið fram og aftur. Í hinni stillingunni er fastur snúningshraði samkvæmt stillingu á s.á.m. þegar verkfærið
gengur. Þegar þrýst er samtímis á rpm+ og rpm– hnappana, skiptir verkfærið á milli snúningshraðastillinganna
tveggja.
Leggðu slípivélina ávallt á vinnuflötinn sem á að pússa áður en þú setur hana í gang. Fjarlægðu verkfærið ávallt af
vinnufletinum áður en slökkt er á því.
Þegar slípivinnu er lokið, er slökkt á slípivélinni með því að þrýsta á Á/Af hnappinn. Við það slokknar á ljóstvisti
(hægri) slípivélarinnar.
Bluetooth
Rafverkfæri þetta er búið lágorku Bluetooth® tækni og hægt er að tengja það við app sem gefur kost á fleiri aðgerðum
og meiri virkni. Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um virkni appsins og hvort það sé fáanlegt í heimalandi þínu með
því að fara á www.mirka.com.
Þú virkjar Bluetooth á Mirka® DEOS-verkfærinu þínu sem hér segir:
1. Stingdu rafmagnsleiðslunni í samband við rafmagn.
2. Þrýstu á + hnappinn og haltu honum niðri á meðan þú kveikir á verkfærinu með On/Off hnappinum.
3. Grænt ljós kviknar á vinstri ljóstvistum (LED) til þess að sýna að Bluetooth sé virkt.
4. Bluetooth-tengingin rofnar þegar tækið er tekið úr sambandi við rafmagn á ný.
ATHUGASEMD! Sé appið ekki sett upp eða ekki í boði í heimalandi þínu, ætti ekki að virkja Bluetooth.
Heitið Bluetooth® og lógó eru skráð vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun KWH Mirka Ltd á þeim er háð
leyfi. Önnur vörumerki og vöruheiti er í eigu viðkomandi eigenda.

Содержание

Похожие устройства

Скачать